að hella uppá kaffi eins og ég fæ alltaf þegar ég fer heim í heimsókn -
kanilkaffi.
Alveg ótrúlega gott kaffi sem er bara eins og.... já erfitt að útskýra það - mæli bara eindregið með því að fólk skelli sér í heimsókn til þeirra hjóna og heimti kaffi. En ég skellti kaffi í espresso kaffivélina sem Óli var svo spenntur fyrir því að kaupa... einmitt eftir að hafa smakkað þetta kaffi... en þar sem að ég er ekki búin að hanga nógu mikið yfir öxlinni á fólkinu heima þegar það er verið að vinna í gerð þessa kaffis svo að ég hafði ekki hugmynd um hvernig þau gera þetta... þá prufaði ég bara að skella teskeið af hreinum kanil með í kaffiduftið og skellti þessu svo bara á eldavélina - og þetta kom bara alveg ágætlega út, er meira að segja að spá í að gera þetta ennþá jólalegra næst og skella smá negul útí þetta líka. Ég skal samt viðurkenna það að þetta var ekki eins gott og hjá heimafólkinu eeen þetta sló allavegana smá á heimþránna :)
En ætla að skella mér í verkefni sem ég þarf að vera búin að ljúka á föstudaginn og ætla svo LOKSINS að klára sörurnar og mömmukökurnar sem ég var svo rosalega dugleg að búa til kökurnar en á eftir að klára kremin og skella þeim saman - kökurnar búnar að vera inni í frysti í rúma viku held ég.... en einhvers staðar heyrði ég að það væri bara betra fyrir kökurnar... og þegar ég segi að ég hafi heyrt það einhvers staðar þá meina ég að ég hafi sagt þetta upphátt á meðan ég skrifaði þetta ;)
Við setjum kanilstöng í botninn á kaffikönnunni og þá kemur þessi yndislega lykt og bragð. Gaman að sjá hvað það er huggulegt hjá þér og kósí og jólatréð ja... bara rosalega mikil Gauja - hlakka til að hitta ykkur elskan mín!
ReplyDelete