Tuesday, December 13, 2011

Heit tómatsúpa með fylltu brauði

Það var svo fáránlega kalt hérna í gær að mig langaði að hafa eitthvað í kvöldmatinn sem var aðeins heitara - skellti í sterka tómatsúpu með fylltu brauði sem var líka svona helv... mjög gott :)

Byrjaði á því að henda í brauðið sem var um það bil:
  • 50 gr ger
  • 1 tsk salt
  • 1 msk sýróp eða hunang
  • 300 ml volgt vatn
leyfði þessu að leysast upp í korter og skellti svo útí þetta
  • 150 gr haframjöl
  • 500 gr heilhveiti
  • 300 ml volgt vatn
hnoðaði þetta vel saman og leyfði þessu svo að standa í rúma 2 tíma með röku viskustykki yfir og á meðan þetta var dúlla sér skellti ég í súpuna - í hana setti ég
  • 2 dósir af hökkuðum tómötum í dós
  • 1 dós tómatpúrru
  • 3 meðalstórar gulrætur
  • 2 sellerýstauka
  • hálfan niðurskorin lauk
  • 2 hvítlauksgeira
  • salt og pipar
  • þurrkaðan basil
  • cayenne pipar
  • þurrkaðan chilli
leyfði þessu svo bara að malla á lágum hita í góða 3 tíma

Eftir þessa 3 klukkutíma skellti ég allri súpublöndunni í matvinnsluvélina og hakkaði allt saman í smá stund og hellti svo aftur í pottin - smakkaði súpuna til og bætti útí heilum philadelphia rjómosti ásamt 1 dl af sjóðandi vatni með hálfum grænmetis-súputeningi og hrærði vel í og leyfði því aftur að malla á meðan ég skellti mér í brauðið

hnoðaði deigið vel og bætt útí 10 hökkuðum svörtum ólífum, þurrkuðum basil og smá hvítlauksdufti - skipti deiginu svo í 2 hluta og flatti helminginn út á smjörpappír. Smurði svo deigið með meiri philadephia-rjómaosti og dreyfði svo á það:
  • 6 niðuskornum tómötum
  • spínati
  • hreinum fetaosti
  • basiliku
  • smá niðurskornum rauðum chilli
flatti svo hinn helminginn út og breyddi það yfir og lokaði vel hliðunum - skellti brauðinu í ofn á 225° í 30 mín

og þetta heppnaðist bara alveg ágætlega


þetta varð samt alveg frekar stór skammtur og þar sem að við vorum bara tvö að borða þá skellti ég hálfu brauðinu í frystinn ásamt helmingnum af súpunni - verður fínt að taka þetta út næst þegar ég nenni ekki að elda.... samt spurning hvenær eða hvort það verði einhvern tíman ;)

En ég mæli allavegana alveg eindregið með þessu - var mjög sterkt, heitt og gott... æ læk it

1 comment:

  1. Mmmmm þetta hlýtur að hafa verið gott :-)
    Knús, Jóhanna

    ReplyDelete