Ákvað að prufa að blogga aðeins víst að ég er flutt svona "langt í burtu" frá fjölskyldunni minni svo að þau (þá örugglega aðallega mamma) gætu fylgst með því sem ég er að gera. Ég er búin að búa hérna alveg núna í rúman mánuð, alltaf jafnskemmtilegt. Yndislegt fólk hérna sem er búið að taka mér alveg ótrúlega vel. Er að reyna að finna mér einhverja skemmtilega íþrótt til að byrja í... annars verð ég bara að vörka stálið í þreksalnum hérna. Prufaði blak um daginn sem var ótrúlega skemmtilegt og mun meiri æfing heldur en ég bjóst við - var að búast við því að fá að slá kannski þrisvar í boltann og svo í sturtu en hell no, kom alveg löðrandi í svita út af æfingunni og fékk sko að finna fyrir henni næstu tvo daga - elska svoleiðis æfingar.
En jæja.. skórinn kominn útí glugga svo að ég ætla að kíkja uppí rúm
Góða nótt :o)
No comments:
Post a Comment