Friday, December 16, 2011

JÓLIN !!

Datt í svakalegan jólafílíng í gær... ok ég er að ljúga, datt í hann í júlí.... en allavegana þá voru skreyttar fleiri piparkökur, skrifuð jólakort, bakaðar sörur og fleiri smákökur og meira jólaskraut

Þegar María mús var hérna hjá okkur fyrir einhverju síðan ákváðum við að skella í piparkökuhús og skreyta það - rosalega flott hjá litlu prinsessunum.. að vísu gæti þetta hús fengið sinn eigin pall í hinsegin skrúðgöngunni, mjög glimmerað og fínt, en það er bara skemmtilegra


settum svo líka jólatréið upp, mér til mikillar ánægju


og allt þetta var gert í sykursjokki af öllum kökunum


þetta er btw svona 1/50 af öllum kökunum og hef ennþá 8 daga til að baka... love it!

Ætlum svo að kíkja til Reykjavíkur í næstu viku til að klára jólagjafirnar og svona - verður fínt að koma því frá :)

1 comment:

  1. Yndislegt hús - er þetta piparkökustrákur sem er fastur í strompinum? Þú ert mikil húsmóðir krúsin mín

    ReplyDelete