Fengum vin Óla í mat í gær svo að ég ákvað að fylla kjúklingabringur... ákvað að gera þetta bara frekar auðvelt svo að ég marineraði bringurnar í basil og hvítlauk í 3 tíma og skellti svo bara pipar-rjómaosti og tómatpestó inní þær. Snöggsteikti þær á heitri pönnu og setti svo í eldfast mót og saltaði og pipraði. Setti svo álpappír yfir og bakaði þær á 200° í 50 mínútur - tekur venjulega bara hálftíma en þar sem að við lentum á einhverjum ofvöxnum sterabringum þá þorði ég ekki annað en að baka þær aaaðeins lengur
Þar sem að þetta var svo auðvelt þá langaði mig að gera eitthvað aðeins flóknara með þessu og þar sem að ég var búin að leggja bygg í bleyti fyrr um morguninn þá ákvað ég að nýta það bara. Hitaði á pönnu, með smá olíu, hálfan rauðlauk og hálfa venjulegan lauk ásamt 3 hvítlauksgeirum. Skellti svo bygginu útí ásamt hálfum líter af vatni (var með 2 bolla af byggi) og leyfði þessu bara að malla í korter eða þangað til að vatnið var gufað upp. Kryddaði þá með salti, pipar, basil og cayenne pipar... er smá obsest í sterkan mat. Setti þá strengbaunir og spínat útí blönduna ásamt 300 ml af vatni og aftur fékk þetta að malla þangað til að allt vatnið var gufað upp. Setti þetta í skál ásamt hreinum fetaosti og niðurskornum tómötum.
Gerði svo úber einfalda piparostasósu og já... þá var þetta tilbúið. Þetta var bara jette gott held ég... það kvartaði allavegana enginn, enginn veiktist og Óli talar við mig ennþá.... svo að það eru allt góð merki

No comments:
Post a Comment