Monday, August 18, 2014

Eggjalaus döðlukaka

Ég elska döðluköku sérstaklega með heitri karamellusósu og ís. En eftir að eldri sonur minn greindist með eggjaofnæmi þá hef ég ekki náð að fullkomna eggjalausa uppskrift af henni.... þangað til núna :-) Þessi uppskrift er mjúk, góð og þannig séð í hollari kanntinum - það er að segja þangað til að ég bæti karamellu og súkkulaði yfir hana. Það má breyta þessari uppskrift og aðlaga hana að hverjum sem er. Mig langaði að setja þessa uppskrift hérna inn þar sem að ég fann hvergi uppskrift af eggjalausri döðluköku


Eggjalaus döðlukaka


  • 20 döðlur
  • 3/4 bolli mjólk / möndlumjólk
  • 3/4 bolli hrásykur / sykur / púðursykur
  • 1 bolli heilhveiti / hveiti
  • 1/2 bolli kókosolía / olía
  • 1 tsk matarsóti
Hita ofninn í 180°C

Setja döðlur og mjólk í pott og hita að suðu. Taka pottinn af hellunni og leyfa því að standa. Setja hveiti, olíu og matarsóta í sklál. Setja döðlumaukið, mjólkina sem döðlurnar suðu í og sykur í matvinnsluvél og mauka það og bæta því svo í skálina. Blanda öllu saman og hella í eldfast mót.

Baka kökuna í 30 - 40 mínútur eða þar til hún er tilbúin.

Ég ákvað að gera óhollari útgáfuna af þessari köku og  raða pekanhnetum og súkkulaði ofaná kökuna og hella karamellu yfir allt saman.

Mæli með því að prufa þetta

- Gauja

Friday, August 15, 2014

Statement hálsmen

Er mjög skotin í svona "statement" hálsmenum, finnst þetta töff með öllu

- gallabuxur, venjulegur bolur og svona hálsmen

- fallegur kjóll og svon hálsmen

- svartar buxur, skyrta og svona hálsmen

læt nokkrar myndir fylgja með 





- Gauja

Ódýr föt, skór og fylgihlutir

Á þessari síðu eru bæði notuð og ný föt, skór og fylgihlutir. Það eru bara þrjú verð í gangi 100, 500 og 1000 krónur. Mæli með því að fólk kíki þarna inn og skoði - svo koma reglulega inn nýir hlutir

https://www.facebook.com/pages/%C3%93d%C3%BDr-f%C3%B6t/483822445057647





- Gauja

Thursday, August 14, 2014

Iherb sending

Elska að fá pakka en ég fékk einmitt einn slíkan í gær frá iherb. Iherb er internetverslun sem er með náttúrulegar, hollar og góðar vörur - og eru alls ekki dýrar. Ákvað að láta fylgja með það sem ég pantaði mér, get ekki alveg sagt hvort ég mæli með þeim eða ekki en ef ég rekst a gull þá læt ég heyra í mér


Stóri strákurinn minn er með frekar leiðinlegt exem sem vill bara haldast niðri með sterakremi en ég er ekki mikið fyrir au krem svo að ég vil endilega finna eitthvað annað sem virkar. Ég hef reynt hempfræ og það hefur minnkað exemið en hann hefur ekki náð að losna við það svo að ég er tilbúin að reyna allt - vona að þetta virki. Þetta eru einungis náttúruleg efni eins og shea smjör, argan olía og kamilla. Það er frekar sterk lykt af þessu, mjög góð lykt, en samt sterk svo að ég held að ég ætli að prufa þetta krem á mér áður en ég set þetta á litla, stóra strákinn minn.



Húðin mín getur verið frekar leiðinleg en er alls ekki feit - er meira viðkvæm og þurr/venjuleg en mig langaði samt að prufa þennan maska. Hef heyrt rosalega góða hluti um hann, að hann eigi að draga óhreinindi út og að húðin verði slétt og eins og ný. En þessi maski er samt leirmaski, sem er betri fyrir feita húð, svo að ég ætla að fara varlega í hann. Það er mjög góð piparmyntu lykt af honum og þér líður eins og að hann sé að gera eitthvað.




Þetta krem kostaði bara rétt um 100 krónur sem prufa, iherb hefur alltaf prufur sem kosta þá minna og í þetta skiptið var þetta krem partur af þeim. En kremið á að innihalda manuka hunang sem á að mýkja húðina.



Ég er með mjög viðkvæma og rauða húð og mig vantaði gott dagkrem - þetta inniheldur kamillu sem á að róa húðina og hunang sem á að mýkja hana og hreinsa hana. Áferðin á þessi kremi er frekar sérstök og lyktin er líka ekki alveg minn tebolli en ég hlakka samt til að prufa það



Féll alveg fyrir Kylie Jenner varalita-æðinu og var að vona að þessi myndi henta í það. Þessi er samt aðeins of bleikur og ljós en er samt mjög fallegur litur. Varaliturinn er mjúkur, þurrkar ekki varirnar og helst rosalega vel á miðað við að hafa kostað 200 krónur



Vantar gott augnkrem svo að ég ákvað að prufa þetta. Er laust við paraben efni og á að lýsa augnsvæðið og losa við hrukkur - SELT. Áferðin er rosalega mjúk og lyktin er æðisleg en spurning hvort þetta geri það sem það á að gera.



Var rosalega spennt fyrir þessum en hann er alveg náttúrulegur með kanil. Hann litar varirnar örlítið rauðar og kanillinn lætur varirnar stækka örlítið. Þessi er uppáhald nú þegar



Þessi hármaski inniheldur kókosolíu, ólífuolíu, avocado olíu og silkiprótein en er án parabenefna. Hlakka til að prufa hann



Vantaði aloe vera gel og hef ekki nægilega græna fingur til að geta haldið aloe vera plöntu lifandi. Þetta er 99% aloe vera ásamt e, a og c-vítamini og þetta kostaði bara rúman 300 kall svo að ég ákvað að prufa þetta.

Allt þetta kostaði 42 dollara með sendingarkostnaði og svo var blessaður tollurinn 2400 krónur. Mér finnst það bara frekar vel sloppið miðað við hversu mikið var í kassanum :-)

- Gauja

Wednesday, August 13, 2014

Pakki á dag kemur skapinu í lag

Góðir dagar byrja svona - kaffi, súkkulaði og pakki frá iherb


Eigiði góðan dag :-)

Tuesday, August 12, 2014

SheInside

Hæ ég heiti Gauja og er kaupalki

áður en ég eignaðist strákana mína fannst mér fátt skemmtilegra en að rölta í gegnum Kringluna og finna mér eitthvað fallegt. Núna einkennast Kringluferðirnar mínar af stressi, hlaupi og enda oftast á því að labba út með föt í stærð 62 eða 86 - þó að ég sé lítil þá passa ég ekki í það!

Núna finnst mér miklu skemmtilegra að versla bara á netinu - get gert það heima, í joggingbuxunum með hvítvínsglas! :-)

Upp á síðkastið hef ég verið að skoða mikið á www.sheinside.com. Æðisleg síða með ódýrum fötum, skóm og fylgihlutum - sniðugt líka þar sem að maður getur skrollað niður á síðunni og séð þar hvernig venjulegt fólk er í fötunum en ekki bara módelin :-)

Læt óskalistann minn fylgja með - hægt að ýta á textann til að fara á síðuna

Gráar þægilegar buxur

Finnst þessar svo töff og líta út fyrir að vera þægilegar


Svört peysa með PU leðri

Þessi er alveg ég - svört með smá edge, fín fyrir veturinn


Grá golla

Þessi gæti verið flott til að henda yfir sig


Ljós kápa

Þessi er kannski frekar mikið sumarleg en flott er hún


Gylltir hringir



Besta við þessa síðu eru auðvitað verðin - en öll þessi karfa er rétt rúmur 10 þúsund kall, enginn sendingarkostnaður en svo að vísu bætist blessaður tollurinn við en í þetta skiptið fengu buxurnar og svarta peysan að koma með mér heim... ásamt nokkrum jólagjöfum ;-)

Ef þið viljið prufa getið þið farið hingað og fengið 20% afslátt :-)

Monday, August 11, 2014

Á leiðinni í sólina..... í Reykjavík



Æðisleg spá í Reykjavík í vikunni svo að ég ætla að pakka strákunum mínum niður í tösku og kíkja suður í nokkra daga

Er að elska þetta lag þessa daga sérstaklega þegar það er sól - langar í ískalt klakahvítvín þegar ég heyri það

- G