Saturday, December 17, 2011
Stelpudót
Er búin að vera gjörsamlega föst inná ÞESSARI síðu. Ótrúlega skemmtilegt stelpudót og rosalega ódýrt... langar í svo margt þarna. En ætla að henda mér í meiri bakstur, hlakka svo til að kíkja til Reykjavíkur og hitta familíuna og vinina mína :o)
Friday, December 16, 2011
JÓLIN !!
Datt í svakalegan jólafílíng í gær... ok ég er að ljúga, datt í hann í júlí.... en allavegana þá voru skreyttar fleiri piparkökur, skrifuð jólakort, bakaðar sörur og fleiri smákökur og meira jólaskraut
Þegar María mús var hérna hjá okkur fyrir einhverju síðan ákváðum við að skella í piparkökuhús og skreyta það - rosalega flott hjá litlu prinsessunum.. að vísu gæti þetta hús fengið sinn eigin pall í hinsegin skrúðgöngunni, mjög glimmerað og fínt, en það er bara skemmtilegra
settum svo líka jólatréið upp, mér til mikillar ánægju
og allt þetta var gert í sykursjokki af öllum kökunum
þetta er btw svona 1/50 af öllum kökunum og hef ennþá 8 daga til að baka... love it!
Ætlum svo að kíkja til Reykjavíkur í næstu viku til að klára jólagjafirnar og svona - verður fínt að koma því frá :)

Thursday, December 15, 2011
Fylltar bringur
Fengum vin Óla í mat í gær svo að ég ákvað að fylla kjúklingabringur... ákvað að gera þetta bara frekar auðvelt svo að ég marineraði bringurnar í basil og hvítlauk í 3 tíma og skellti svo bara pipar-rjómaosti og tómatpestó inní þær. Snöggsteikti þær á heitri pönnu og setti svo í eldfast mót og saltaði og pipraði. Setti svo álpappír yfir og bakaði þær á 200° í 50 mínútur - tekur venjulega bara hálftíma en þar sem að við lentum á einhverjum ofvöxnum sterabringum þá þorði ég ekki annað en að baka þær aaaðeins lengur
Þar sem að þetta var svo auðvelt þá langaði mig að gera eitthvað aðeins flóknara með þessu og þar sem að ég var búin að leggja bygg í bleyti fyrr um morguninn þá ákvað ég að nýta það bara. Hitaði á pönnu, með smá olíu, hálfan rauðlauk og hálfa venjulegan lauk ásamt 3 hvítlauksgeirum. Skellti svo bygginu útí ásamt hálfum líter af vatni (var með 2 bolla af byggi) og leyfði þessu bara að malla í korter eða þangað til að vatnið var gufað upp. Kryddaði þá með salti, pipar, basil og cayenne pipar... er smá obsest í sterkan mat. Setti þá strengbaunir og spínat útí blönduna ásamt 300 ml af vatni og aftur fékk þetta að malla þangað til að allt vatnið var gufað upp. Setti þetta í skál ásamt hreinum fetaosti og niðurskornum tómötum.
Gerði svo úber einfalda piparostasósu og já... þá var þetta tilbúið. Þetta var bara jette gott held ég... það kvartaði allavegana enginn, enginn veiktist og Óli talar við mig ennþá.... svo að það eru allt góð merki

Wednesday, December 14, 2011
Kanilkaffi
Fékk einhverja svakalega heimþrá í morgun þegar ég var búin að skutla í vinnu og leikskóla og kom heim í þögnina. Var að spá í því hvort að ég ætti að kveikja á sjónvarpinu, útvarpinu og jafnvel blandaranum til að fá smá líf í þetta en datt í hug annað sem myndi kannski ekki valda alvega eins miklum höfuðverk:
Alveg ótrúlega gott kaffi sem er bara eins og.... já erfitt að útskýra það - mæli bara eindregið með því að fólk skelli sér í heimsókn til þeirra hjóna og heimti kaffi. En ég skellti kaffi í espresso kaffivélina sem Óli var svo spenntur fyrir því að kaupa... einmitt eftir að hafa smakkað þetta kaffi... en þar sem að ég er ekki búin að hanga nógu mikið yfir öxlinni á fólkinu heima þegar það er verið að vinna í gerð þessa kaffis svo að ég hafði ekki hugmynd um hvernig þau gera þetta... þá prufaði ég bara að skella teskeið af hreinum kanil með í kaffiduftið og skellti þessu svo bara á eldavélina - og þetta kom bara alveg ágætlega út, er meira að segja að spá í að gera þetta ennþá jólalegra næst og skella smá negul útí þetta líka. Ég skal samt viðurkenna það að þetta var ekki eins gott og hjá heimafólkinu eeen þetta sló allavegana smá á heimþránna :)
En ætla að skella mér í verkefni sem ég þarf að vera búin að ljúka á föstudaginn og ætla svo LOKSINS að klára sörurnar og mömmukökurnar sem ég var svo rosalega dugleg að búa til kökurnar en á eftir að klára kremin og skella þeim saman - kökurnar búnar að vera inni í frysti í rúma viku held ég.... en einhvers staðar heyrði ég að það væri bara betra fyrir kökurnar... og þegar ég segi að ég hafi heyrt það einhvers staðar þá meina ég að ég hafi sagt þetta upphátt á meðan ég skrifaði þetta ;)
að hella uppá kaffi eins og ég fæ alltaf þegar ég fer heim í heimsókn -
kanilkaffi.

Tuesday, December 13, 2011
Heit tómatsúpa með fylltu brauði
Það var svo fáránlega kalt hérna í gær að mig langaði að hafa eitthvað í kvöldmatinn sem var aðeins heitara - skellti í sterka tómatsúpu með fylltu brauði sem var líka svona helv... mjög gott :)
Byrjaði á því að henda í brauðið sem var um það bil:
Eftir þessa 3 klukkutíma skellti ég allri súpublöndunni í matvinnsluvélina og hakkaði allt saman í smá stund og hellti svo aftur í pottin - smakkaði súpuna til og bætti útí heilum philadelphia rjómosti ásamt 1 dl af sjóðandi vatni með hálfum grænmetis-súputeningi og hrærði vel í og leyfði því aftur að malla á meðan ég skellti mér í brauðið
hnoðaði deigið vel og bætt útí 10 hökkuðum svörtum ólífum, þurrkuðum basil og smá hvítlauksdufti - skipti deiginu svo í 2 hluta og flatti helminginn út á smjörpappír. Smurði svo deigið með meiri philadephia-rjómaosti og dreyfði svo á það:
og þetta heppnaðist bara alveg ágætlega

- 50 gr ger
- 1 tsk salt
- 1 msk sýróp eða hunang
- 300 ml volgt vatn
- 150 gr haframjöl
- 500 gr heilhveiti
- 300 ml volgt vatn
- 2 dósir af hökkuðum tómötum í dós
- 1 dós tómatpúrru
- 3 meðalstórar gulrætur
- 2 sellerýstauka
- hálfan niðurskorin lauk
- 2 hvítlauksgeira
- salt og pipar
- þurrkaðan basil
- cayenne pipar
- þurrkaðan chilli
Eftir þessa 3 klukkutíma skellti ég allri súpublöndunni í matvinnsluvélina og hakkaði allt saman í smá stund og hellti svo aftur í pottin - smakkaði súpuna til og bætti útí heilum philadelphia rjómosti ásamt 1 dl af sjóðandi vatni með hálfum grænmetis-súputeningi og hrærði vel í og leyfði því aftur að malla á meðan ég skellti mér í brauðið
hnoðaði deigið vel og bætt útí 10 hökkuðum svörtum ólífum, þurrkuðum basil og smá hvítlauksdufti - skipti deiginu svo í 2 hluta og flatti helminginn út á smjörpappír. Smurði svo deigið með meiri philadephia-rjómaosti og dreyfði svo á það:
- 6 niðuskornum tómötum
- spínati
- hreinum fetaosti
- basiliku
- smá niðurskornum rauðum chilli
og þetta heppnaðist bara alveg ágætlega
þetta varð samt alveg frekar stór skammtur og þar sem að við vorum bara tvö að borða þá skellti ég hálfu brauðinu í frystinn ásamt helmingnum af súpunni - verður fínt að taka þetta út næst þegar ég nenni ekki að elda.... samt spurning hvenær eða hvort það verði einhvern tíman ;)
En ég mæli allavegana alveg eindregið með þessu - var mjög sterkt, heitt og gott... æ læk it
Sunday, December 11, 2011
Flutningar
Ákvað að prufa að blogga aðeins víst að ég er flutt svona "langt í burtu" frá fjölskyldunni minni svo að þau (þá örugglega aðallega mamma) gætu fylgst með því sem ég er að gera. Ég er búin að búa hérna alveg núna í rúman mánuð, alltaf jafnskemmtilegt. Yndislegt fólk hérna sem er búið að taka mér alveg ótrúlega vel. Er að reyna að finna mér einhverja skemmtilega íþrótt til að byrja í... annars verð ég bara að vörka stálið í þreksalnum hérna. Prufaði blak um daginn sem var ótrúlega skemmtilegt og mun meiri æfing heldur en ég bjóst við - var að búast við því að fá að slá kannski þrisvar í boltann og svo í sturtu en hell no, kom alveg löðrandi í svita út af æfingunni og fékk sko að finna fyrir henni næstu tvo daga - elska svoleiðis æfingar.
En jæja.. skórinn kominn útí glugga svo að ég ætla að kíkja uppí rúm
Góða nótt :o)

Subscribe to:
Comments (Atom)