Monday, August 18, 2014

Eggjalaus döðlukaka

Ég elska döðluköku sérstaklega með heitri karamellusósu og ís. En eftir að eldri sonur minn greindist með eggjaofnæmi þá hef ég ekki náð að fullkomna eggjalausa uppskrift af henni.... þangað til núna :-) Þessi uppskrift er mjúk, góð og þannig séð í hollari kanntinum - það er að segja þangað til að ég bæti karamellu og súkkulaði yfir hana. Það má breyta þessari uppskrift og aðlaga hana að hverjum sem er. Mig langaði að setja þessa uppskrift hérna inn þar sem að ég fann hvergi uppskrift af eggjalausri döðluköku


Eggjalaus döðlukaka


  • 20 döðlur
  • 3/4 bolli mjólk / möndlumjólk
  • 3/4 bolli hrásykur / sykur / púðursykur
  • 1 bolli heilhveiti / hveiti
  • 1/2 bolli kókosolía / olía
  • 1 tsk matarsóti
Hita ofninn í 180°C

Setja döðlur og mjólk í pott og hita að suðu. Taka pottinn af hellunni og leyfa því að standa. Setja hveiti, olíu og matarsóta í sklál. Setja döðlumaukið, mjólkina sem döðlurnar suðu í og sykur í matvinnsluvél og mauka það og bæta því svo í skálina. Blanda öllu saman og hella í eldfast mót.

Baka kökuna í 30 - 40 mínútur eða þar til hún er tilbúin.

Ég ákvað að gera óhollari útgáfuna af þessari köku og  raða pekanhnetum og súkkulaði ofaná kökuna og hella karamellu yfir allt saman.

Mæli með því að prufa þetta

- Gauja

No comments:

Post a Comment