Monday, January 23, 2012

Heimagerð sjávarréttarsjúpa

Vá alltof langt síðan ég skrifaði e-ð hérna... er búin að eiga notalega helgi heima, fékk meira að segja mömmu og Maríu í heimsókn - svo að það er fátt annað búið að vera að gera en að borða og drekka kannski eitt eða tvö eða þrjú rauðvínsglös. Elduðum æðislega heimatilbúna þorskborgara á föstudaginn (skelli uppskrift inn seinna), Óli skellti svo í rosalega gott sushi á laugardaginn og svo langaði mig svo mikið í alvöru sunnudagsmat í gær að ég ákvað að gera alvöru sjávarréttasúpu, steikur með bökuðum kartöflum og svo sykursjokk í eftirmatinn (set líka þá uppskrift hérna seinna)

En súpan heppnaðist alveg helv... vel - skal sjera henni hérna með ykkur

byrjaði á að steikja 15 humarskeljar uppúr smá smjöri á pönnu , setti hálfan niðurskorinn lauk og 2 hvítlauksgeira og leyfði því aðeins að steikjast. Kryddaði með karrý, basil, oregano, smá cayenne pipar, salti og pipar, einu lárviðarlaufi og 2 negulnöglum. Setti svo 2 msk af tómatpúrru og hrærði vel í. Setti svo 200 ml af vatni á pönnuna og leyfði þessu að malla smá. Hellti svo í pott og bætti við 800 ml af vatni og leyfði þessu að sjóða í 2 klukkutíma.

Veiddi svo skeljarnar uppúr og steikti þær aftur á pönnu með smá smjöri og leyfði þeim að brúnast vel. Hellti um 200 ml af vatni aftur á pönnuna og skrapaði allt vel af botninum og hellti öllu aftur í pottinn með hinu. Bætti við 200 ml og leyfði þessu að sjóða vel niður í gott mauk.

Svo sigtaði ég þetta og setti í minni pott. Í þetta ætlaði ég  svo að setja hvítvín og rjóma... en þar sem að það var sushi í matinn kvöldið áður þá var ég full bjartsýn með það að það yrði e-ð vín eftir;o) En þá prufaði ég bara að skella heilu niðurskornu rauðu epli, safanum úr heilli sítrónu, 2 tsk af ediki, 500 ml af vatni og hálfum kjúklingakraftsteningi í pott. Sauð það alveg niður og bætti í 300 ml af ísköldu vatni og notaði svo 2 dl af þessu útí humarsoðið mitt

Bætti svo 2 dl af rjóma og um hálfum dl af mjólk og hrærði vel í þessu og leyfði suðunni aðeins að koma upp. Skellti útí um 2 dl af rækjum og smakkaði mig til - ég bætti út í þetta smá salti og pipar og þar sem að ég vil að maturinn minn geti auðveldlega kveikt í hálsinum mínum þá setti ég aðeins meira af cayenne pipar.

Steikti svo um 300 gr af þorski í hvítlauksolíu og skipti honum í 3 djúpar skálar. Hellti svo súpunni yfir og þá var þetta bara tilbúið.

Hætti við að hafa brauð með þessu þar sem að ég vildi ekki hafa þetta of matarmikið - vildi að fólkið mitt myndi líka borða hina 2 réttina mína ;o)

En það voru allir frekar sáttir með þetta - meira að segja María litla systir borðaði þetta með bestu list... og þá er mikið sagt;o)

Klikkaði illa á að taka mynd af þessu en þið bara ímyndið ykkur e-ð girnilegt... eða prufið að búa til sjálf og sjá hvernig þetta lítur út;o)

En ætla að kíkja með skvísurnar í búðina - ætla að leyfa þeim að elda kvöldmatinn

Kv. Gauja

No comments:

Post a Comment